US Handbal 01-04-1950
US Handbal er handboltalið sem hefur verið starfrækt í Amsterdam síðan
1950. Það er lið fyrir erlenda nemendur sem læra í Amsterdam. Nemendur
allstaðar að úr heiminum æfa með US Handball á meðan dvöl þeirra í
höfuðborg Niðurlanda stendur. Flestir meðlimir US Handball hafa
háskólagráðu eða eru að læra í háskóla. Félagsgjöldin eru 261,50 Evrur, en
nemendur fá afslátt og borga aðeins 176,50 Evrur á ári. Liðið spilar leiki á
stór-Amsterdam svæðinu nánast hvern sunnudag, stundum á laugardagskvöldum;
inni-, úti- eða strandhandbolta. Klúbburinn hefur 10 lið sem spila í
innanhúsdeild sem byrjar í október og klárast í apríl/maí.
Komdu og prufaðu að mæta á æfingu án allra skuldbindinga. Þær eru haldnará þriðjudögum frá 18:30 til 23:30 ‘de Wibauthal’ við Van
Musschenbroekstraat 38 rétt fyrir aftan Wibauthúsið, nálægt Weesperplein,
metro 53,54 og háhraða metró 51
Athugið: Þetta leiktímabil verða haldnar aukaæfingar á fimmtudögum frá
19:00 til 22:00 í Sporthal Zuid, nálægt metróstöð Amstelveenseweg (við
ólympíuleikvanginn) metró 50 eða trammar 24 og 16. Svo eru æfingar kvenna
líka á föstudagskvöldum kl. 20:00 í Wibauthal.
Ef frekari upplýsinga er óskað skal hafa samband við Katrien
(06-137.65.501) eða sendið tolvupóst.